Fréttir
18.8.2010
25 hryssur fengnar

Alls eru 25 hryssur fengnar það sem af er sumri og enn aðrar 5 líklegar sem eru í hólfinu hjá honum en ekki hægt að staðfesta. Næst verður sónarskoðað um miðjan september og hann þá tekinn úr hryssum. Hákon er feitur og pattaralegur og hefur það greinilega gott í Flagbjarnarholti.
Nýjar myndir frá síðustu sónarskoðun, 10. ágúst sl. eru komnar inn í Myndaalbúmið.
3.8.2010
Prúður foli - Hákon í 25 hryssum

Hákon hefur það gott í Flagbjarnarholti. Hann er í um 25 hryssum en stefnt er að því að grynnka á þessum fjölda í næstu viku, með því að sónarskoða hryssur sem eru tilbúnar í það og taka frá honum fengnar hryssur.
Hryssueigendur eru beðnir um að vera í startholunum að sækja sínar hryssur í Flagbjarnarholtmiðvikudaginn 11. ágúst nk. kl. 14:00. Nýjar myndir eru komnar inn á Myndasíðuna.
23.7.2010
Hákon fyljaði vel á húsmáli

Hákon fyljaði 9 hryssur á húsmálinu. Góður árangur miðað við hrossapest og fjölda "vandamálahryssna" sem komu til hans á húsmálið í Austurási. Vandamál hefur verið að koma fyli í fimm hryssur, bæði í fyrra og í sumar, af þeim sem ekki fyljuðust á húsmálinu.
Við þökkum Hauki og Röggu í Austurási fyrir sérstaklega vönduð störf í vor.
Heimasíða Austuráss.
23.7.2010
Ágætis fyljun úr fyrstu sónarskoðun

Sónarskoðað var frá Hákoni þann 20. júlí síðastliðinn. Staðfest var fyl í átta hryssum af 15 sem voru sónarskoðaðar. Bætt var inn nokkrum hryssum frá hluthöfum sem áttu pláss á seinna gangmál. Stefnt er að því að sónarskoða aftur eftir um þrjár vikur, eða um 10. ágúst. Hákon lítur vel út, er rólegur í hólfinu og hefur fitnað ef eitthvað er. Hjá honum eru nú rúmlega 20 hryssur.
10.7.2010
Sónarskoðað frá Hákoni 20. júlí 2010

Sónarskoðað verður frá Hákoni í Flagbjarnarholti þriðjudaginn 20. júlí 2010 kl. 14:00. Hryssueigendur eru vinsamlega beðnir um að vera í startholunum að sækja sínar hryssur þann dag ef fengnar eru. Hringt verður í alla hryssueigendur og þeir látnir vita um niðurstöðu sónarskoðunar.
Einnig viljum við benda þeim á sem eiga pláss á seinna gangmál að koma með hryssurnar í Flagbjarnarholt 20. júlí, Hákoni verður sleppt aftur í hólfið seinnipartinn þann dag.
7.7.2010
Slettuskjótt undan Óríonsdóttur

Egill og Svava í Garði við Melahvarf fengu þessa gullfallegu bleikálóttslettuskjóttu hryssu undan Hákoni í fyrrinótt. Hún hefur ekki hlotið nafn enn. Móðir hennar er Óríonsdóttir, Ör frá Breiðabólsstað. Ör ber væntanlega með sér slettuskjótta genið, er sjálf bleikálótt, tvístjörnótt.
Fleiri myndir þessari slettuskjóttu auk annarra Hákonsbarna eru komnar inn í myndaalbúmið.
6.7.2010
Brúnskjóttur undan Bendingu og Hákoni

Þessi myndarfoli er undan Hákoni og 1. verðlauna hryssunni Bendingu frá Kaldbak. Hann hefur fengið nafnið Sæþór frá Stafholti og er úr ræktun þeirra Mundu og Palla Jóa í Stafholti. Mjög eftirtektarverður foli. Á heimasíðu hestamannafélagsins Brimfaxa eru fleiri myndir og kemur meðal annars fram þar að í þessum fola eru gen úr gæðingum eins og m.a. Álfi frá Selfossi, Hátíð frá Úlfsstöðum og Gusti frá Grund. Garparnir Orri frá Þúfu og Kolfinnur frá Kjarnholtum koma einnig báðir tvisvar fyrir í ættartrénu hjá honum.
Fleiri myndir á www.brimfaxi.is
29.6.2010
Tollur undir Hákon í hólfinu til sölu

Einn folatollur undir Hákon núna á fyrra gangmáli er til sölu. Áhugasamir hafi samband við Hannes í síma 864-1315.
25.6.2010
Hákonsbörnin vekja lukku

Þau vekja mikla lukku, Hákonsbörnin sem komin eru í heiminn. Almennt þykja þau langflest reist með mjúkan háls, mjög fótahá og fara fallega. Þessi sperrti foli er undan Hákoni og Oddsdótturinni Skyldu frá Hnjúkahlíð, og er í eigu Guðjóns Árnasonar.
Við þökkum fyrir myndirnar og hvetjum fleiri sem hafa fengið Hákonsbörn í sumar til að senda inn myndir af þeim. En hins vegar er ljóst að ættarsvipurinn er nokkuð sterkur að erfast í gegn. Hákonsbörnin eru til fyrirmyndar.
16.6.2010
Húsmálið gekk vel - 6 hryssur fylfullar

Húsmálið gekk glimrandi vel hjá Hákoni í Austurási. Það var vel nýtt og komu alls 18 hryssur til hans þangað. Húsmálið byrjaði snemma, fyrstu dagana í maí en lauk í gær 15. júní. Hákon var þá fluttur í hryssuhópinn sem mættur var í Flagbjarnarholt. Alls hafa 6 hryssur verið sónarskoðaðar fylfullar við Hákoni í vor og munum við færa nánari fréttir af fylfullum hryssum og heildarárangri húsmálsins hér á síðunni. Þeim hryssueigendum sem komu með hryssur í Austurás verður sendur reikningur á næstu dögum fyrir dvölinni og sónarskoðunum þar sem það á við.
Við þökkum strákunum í Austurási, Hauki og Óla, kærlega fyrir vel unnin störf en sérstakar þakkir fær Ragga í Austurási sem hélt gríðarlega vel utan um Hákon og hryssurnar. Gott gengi á húsmálinu er ekki síst henni að þakka.
13.6.2010
Ófeigur dreginn í heiminn

Við fengum þessa flottu sögu senda frá Einari í Söðulsholti sem eignaðist sitt fyrsta afkvæmi undan Hákoni nú á dögunum:
,,Við vorum nú orðin frekar óþreyjufull að bíða eftir öðru folaldi, erum búin að fylgjast vel með merunum síðustu daga og loksins fór að leka mjólk úr Blæju sem áttu samkvæmt sónun að kasta fyrir nokkrum dögum. Við vöktum yfir henni um nóttina en þetta gekk samt óvenju rólega hjá henni því venjulega er þær mjög fljótar af þessu, hún var samt greinilega óróleg og var alltaf að fá öðru hverjir hríðir en lagðist aldrei niður til að rembast og svo bara alltíeinu hætti allt saman og hún fór bara að bíta. Eftir að hafa talað við dýralækni sem komst ekki strax, fór dóri inn í hana og í staðinn fyrir að finna fyrir fótum og snoppu fann hann fyrir bakinu á folaldinu. Má kannski segja að sem betur fer hefur Dóri mikla reynslu af sauðburði og náði að rétta það af og ná löppunum, það verður nú alveg að viðurkennast að við vorum ekkert voða bjartsýn að það væri lifandi.
Enda vorum við ekkert smá glöð þegar við náðum því frá henni og það var lifandi og ekki nóg með það heldur var það geggjað á litinn. Rauðskjóttur hestur, glaseygður á báðum augum og mjög mikið hvítur, bara rauður á eyrunum og milli þeirra, með rauðan blett við sitthvort augað og svo rauðan blett í öðrum náranum. GEGGJAÐ Flottur;) á trúlega eftir að verða mikið baðaður í framtíðinni.;)
Sá stutti var ekki skriðinn á fætur þegar var búið að nefna hann Ófeig en hann er undan 1.verðlauna klárhryssunni Blæju frá Svignaskarði og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum.
Heimasíða Söðulsholts www.sodulsholt.is
Þess má geta að Blæja móðir folaldsins ber slettuskjótta genið, er undan Jarli frá Búðardal sem bar genið til hennar...og ekki um að villast að Ófeigur er slettuskjóttur ef litafræðin svíkur ekki. Hins vegar er Hákon að gefa bæði venjulega skjótt og einlitt, amk komin tvö rauð, eitt brúnt og eitt bleikálótt einlitt undan honum.
Við óskum eftir myndum af fleiri Hákonsbörnum...endilega sendið á hrafnar@hrafnar.is
9.6.2010
Teitur frá Blesastöðum

Teitur frá Blesastöðum 1A undan Hákoni og Dögg frá Kílhrauni. Blesastaðahjónin fengu þennan myndarlega fola, hágengan og flugvakran að þeirra sögn í maí síðastliðnum. Hann er undan Dögg, móður Blúndu frá Kílhrauni sem hefur verið að gefa frábær hross svo sem Ölfu og Fláka frá Blesastöðum.
8.6.2010
Hákonsdóttir - Bleikálótt hryssa

Bleikálótt stjörnótt hryssa fæddist þann 5. maí síðastliðinn á Hamarsey hjá undirrituðum. Gullfalleg eins og foreldrarnir, háfætt og framfalleg. Fleiri myndir á www.hamarsey.is
Við hvetjum Hákonsfélaga til að senda inn myndir af folöldunum sem fædd eru, en vitað er um rauða hryssu hjá Magga og Lóu (sjá myndir neðar á síðunni), rauða hryssu hjá Jens á Stokkseyri, rauðskjóttan hest hjá Magga og Hólmfríði á Blesastöðum og brúna hryssu hjá Birni Þór.
2.6.2010
Tollur undir Hákon til sölu

Til sölu er einn folatollur undir Hákon á fyrra gangmáli. Gangmálið hefst 12. júní nk. en möguleiki er að koma með hryssuna síðar í hólfið ef hún er ekki köstuð.
Áhugasamir hafi samband við Hannes í síma 8641315 eða með tölvupósti á hamarsey@hamarsey.is
31.5.2010
Hryssur í hólfið 13. júní

Óskað er eftir að þeir sem eiga pláss á fyrra gangmál komi með hryssur í Flagbjarnarholt sunnudaginn 13. júní nk. á milli kl. 13:00 og 16:00. Ef einhver getur ómögulega komið á þessum tíma má hafa samband við Helgu í Flagbjarnarholti í síma 898-4579 og semja um aðra tímasetningu.
Við afhendingu hryssnanna þarf að láta Helgu vita um eftirfarandi:
Eigandi/umráðamaður hryssu,
Símanúmer,
Uppl. um hryssu
Nafn og uppruni
Fæðingarnúmer
Einstaklingsmerki
Uppl. um folald
Nafn og uppruni
Litur
Faðir
Einstaklingsmerki
Góð regla er að búið sé að einstaklingsmerkja folöld og gefa hryssunum inn ormalyf auk þess að klippa hófa ef þess er þörf. Hryssur sem koma í girðingu hjá hestinum verða alfarið á ábyrgð umráðamanna þeirra á meðan þær eru í girðingunni. Daglegt eftirlit verður með girðingunni en umráðamönnum hryssu er ekki heimilt að fara um girðinguna á tímabilinu án samráðs við Helgu.
Stefnt er að því að sónarskoða að um 6 viknum liðnum eða um mánaðamót júlí/ágúst.
20.5.2010
Hákon orðinn pabbi

Gullfalleg hryssa, reist og háfætt sem fæddist undan Hákoni19. maí kl. 22:30 að Grásteini. Stoltir eigendur eru Magnús L. Sigurðsson og Ólafía K. Bjarnleifsdóttir. Folaldið, sem er rauð hryssa, hefur fengið nafnið Hylling.
Fleiri myndir af Hyllingu má skoða í myndaalbúminu.
Við óskum Magga og Lóu innilega til hamingju með bráðfallega hryssu.
17.5.2010
Myndir frá Kríunni
Hörður og María settu myndir frá hinum vel heppnaða aðalfundi í mars á heimasíðu sína www.krian.is
Hægt er að smella hér til að sjá fréttina Aðalfundur Ræktunarfélagsins Hákons á Kríunni
4.5.2010
Fyrsta hryssa ársins undir Hákon

Hákon í Austurási í kvöld þann 4. maí 2010 að sinna skyldustörfunum.
Þá er kallinn dottinn í gang...fyrsta hryssan sem leidd var undir Hákon í ár er 1. verðlauna dóttir Baldurs frá Bakka, Prinsessa frá Litla-Dunhaga. Hún er í eigu Hauks og Röggu í Austurási.
Næsta hryssa hefur tilkynnt komu sína um næstu helgi. Þannig að húsmálið er komið á fullt og um að gera fyrir þá sem eiga pláss þar að fara að sónarskoða geldar hryssur og setja sig í samband við Röggu (GSM 664-8001 og ragga@toyotaselfossi.is).
25.4.2010
Hákon kominn á hús

Þá er orðið ljóst á hvaða gangmál hluthafar hafa óskað eftir því að koma með sína (bestu) hryssu undir Hákon. Upplýsingar um það má sjá með því að smella á Skrár hér til vinstri á síðunni og opna skjal sem heitir HákonNotkun2010.
Hákon sjálfur er mættur í Austurás og er tilbúin til að þjóna hryssum.
10.4.2010
Panta pláss 15. apríl

Kl. 12:00 á hádegi þann 15. apríl mun hefjast skráning á gangmál hjá Hákoni. Þeir hluthafar sem eiga rétt á að halda undir Hákon í ár eru beðnir um að senda tölvupóst á hannes@lsh.is með upplýsingum um á hvaða gangmál þeir vilja koma með hryssu til Hákons. Sjá Gangmál 2010.
Fyrstur kemur, fyrstur fær...eða öllu heldur ,,fyrstur sendir póst, fyrstur fær pláss á umbeðnu gangmáli". Forgang á plássin eiga þeir hluthafar sem héldu ekki undir Hákon í fyrra sbr. forgangshópa sem voru kynntir á aðalfundinum og koma fram í síðustu fundargerð stjórnar.
Við reiknum með um það bil 20 hryssum í hólfið í Flagbjarnarholti frá 15. júní til 25. júlí í fyrra gangmál og svipuðum fjölda frá 25. júlí til 30. september á seinna gangmáli.
Húsmálið byrjar þann 1. maí nk. í Austurási (www.austuras.is)
Fyrra gangmál hefst 15. júní.
Seinna gangmál hefst 25. júlí.
ps. fundargerð aðalfundar 2010 er komin á heimasíðuna undir Skrár
22.3.2010
Snikkur á Hákoni

Það var snikkur á þeim skjótta á aðalfundinum á laugardaginn síðastliðinn. Fleiri myndir inn á www.sodulsholt.is
11.3.2010
Aðalfundur 20. mars 2010
Aðalfundur Ræktunarfélagsins Hákons verður þann 20. mars nk. kl. 18:00.
Við ætlum að hittast fyrir austan fjall, nánar tiltekið á Hólaborg í Flóa (www.holaborg.is) þar sem við munum skoða Hákon sjálfan.
Eftir það, milli 19:00 og 19:30 höldum við á Kríuna við Glóru (www.krian.is) þar sem við munum setja aðalfund.
Hörður á Kríunni mun vera með heitt á grillinu fyrir svanga, meyrasta lambakjöt (kr. 3200 á manninn), gos, öl og léttvín á barnum (kr. 600).
Sjáumst annan laugardag.
Hákon á aðalfundinum 2009
3.2.2010
Stjórnarfundur janúar 2010 - fundargerðin komin á vefinn

Stjórn félagsins hélt fund á dögunum. Fundargerðin er komin inn á heimasíðuna. Smellt er á Skrár hér til vinstri, svo á plús merkið og þá á Stjórnarfundur Ræktunarfélagsins Hákons Janúar 2010.pdf
30.1.2010
Folaldið Hákon 1. júní 2007

Í myndaalbúm eru komnar nokkrar myndir frá því Hákon var dagsgamall. Hann fæddist þann 1. júní 2007. Hákon var notaður á hryssur í fyrsta skiptið síðasta sumar og er því von á um 20 Hákonsbörnum næsta vor og sumar. Líkur eru á því að 50% þeirra verði skjótt.
25.12.2009
Gleðileg jól og farsælt komandi ár

10.11.2009
Hákon fékk til sín sjö 1. verðlauna hryssur í sumar

Af þeim 22 hryssum sem heimsóttu Hákon í sumar voru sjö þeirra með 1. verðlaun. Auk þeirra var ein hryssa sem hefur gefið 1. verðlauna afkvæmi, Páfadóttirin Ljósblesa frá Ásakoti.
Á myndinni hér að ofan sjáum við Golu frá Þjórsárbakka en móðir hennar, Elding frá Hóli 8,02 var sónarskoðuð fylfull við Hákoni nú í haust. Hana sjáum við hér fyrir neðan. Elding er undan Hrynjanda frá Hrepphólum og hefur gefið tvær 1. verðlauna hryssur.

Fleiri 1. verðlauna hryssur:

Sif frá Prestsbakka 8,34

Selma frá Sauðárkróki 8,10

Blæja frá Svignaskarði 8,01

Sunna -Rós frá Úlfljótsvatni 8,33

Fiða frá Svignaskarði 8,00

Bending frá Kaldbak 8,16
30.9.2009
Rekstrarhæfileikar Hákons

Hákon er frjósamur stóðhestur, á því leikur enginn vafi. Staðfest hafa verið fyl í 18 hryssum eftir sumarið en tvær til viðbótar gætu verið fengnar. Þó að rólegheit hafi verið í hólfinu í sumar og ekki mikil hlaup og bægslagangur þá hélt Hákon hryssunum vel saman eins og flestra stóðhesta er venja.
Hér í þessari myndaseríu Rekstrarhæfileikar stóðhestsins Hákons sjáum við tilburðina þegar tvær hryssur taka sig út úr hópnum.
16.9.2009
Hákon stendur sig - 20 hryssur fyljaðar?

Þá er gangmálið senn á enda hjá Hákoni. Á þeim fjórum mánuðum sem hann hefur verið notaður, frá 15. maí til 15. september hefur hann komist í tæri við 23 hryssur. Vonir standa til að hann hafi náð að fylja 20 hryssur. Nú þegar hafa 17 hryssur verið staðfestar með fyli. Næstkomandi föstudag 18. september mun Hákon verða tekin úr hryssum og þær sónarskoðaðar. Þrjár hryssur hafa verið hjá honum í hólfinu í Flagbjarnarholti frá síðustu mánaðamótum.
Þeir sem notuðu Hákon í sumar eiga von á reikningi frá félaginu þar sem girðingargjald sumarsins, sónarskoðanir og notkunargjald/aðgangsbeiðni eru innheimt. Stjórnarfundur var haldinn í byrjun september og er fundargerðin kominn inn á Skrár hér til hliðar, smella hér Þar er einnig að finna sýnishorn af nýjum hlutaskírteinum en nú hefur verið stofnað einkahlutafélag, Ræktunarfélagið Hákon ehf. og munu ný hlutaskírteini verða send út á næstu vikum. Einnig hefur hluthafaskráin verið uppfærð.
Fleiri myndir frá sumrinu eru komnar inn í myndaalbúmið, smella á myndaalbúm.
6.8.2009
Góð fyljun hjá Hákoni

Mjög vel hefur gengið með Hákon í hólfi í Flagbjarnarholti. Hann er mjög léttbyggður og ekki holdsækinn en er hinsvegar í frábæru standi nú, er frekar feitur en hitt. Hann hegðar sér mjög prúðlega í hólfinu, heldur hryssunum vel saman en er ekki á miklum hlaupum eða djöflagangi í hryssunum.
Alls hafa um 18 hryssur heimsótt hann í Flagbjarnarholti. Hann synjaði einni hryssu inngöngu í hópinn sinn og var sú hryssa tekin frá. Hryssueigandinn bætti annarri hryssu í staðinn sem Hákon tók vel við.
Alls voru 11 hryssur hjá honum allt fyrra gangmálið. Við sónarskoðun þann 21. júlí síðastliðinn voru 7 hryssur staðfestar fylfullar. Ennfremur voru tvær aðrar sem voru líklega fylfullar en ekki var hægt að staðfesta fylin sökum hversu ung þau voru. Þær hryssur voru því látnar ganga áfram með Hákoni og nokkrum bætt við.
Áður hafði verið búið að staðfesta fyl í tveimur hryssum af húsmáli.
Nú eru hjá Hákoni um 12 hryssur og verður sónarskoðað aftur í byrjun september.
Gígja Einarsdóttir ljósmyndari átti leið hjá um Holtin í sumar og tók nokkrar fallegar myndir af Hákoni með stóðmerum sínum.
NÝJAR MYNDIR Í MYNDAALBÚMINU. Smellið á það hér til vinstri.
15.7.2009
Sónarskoðað frá Hákoni 21. júlí 2009
Sónarskoðað verður frá Hákoni í Flagbjarnarholti næstkomandi þriðjudag kl. 14:00. Hryssueigendur eru vinsamlega beðnir um að vera í startholunum að sækja sínar hryssur þann dag ef fengnar eru. Hringt verður í eigendur fylfullra hryssna.
Myndin er af frænku Hákons, Hrund undan Hendingu frá Úlfsstöðum og Orra frá Þúfu. Hún var sýnd í stjörnudóm, 4 vetra á Gaddstaðaflötum í vor, 8,22 klárhryssa með sex 9,0 fyrir hæfileika.
7.6.2009
Gangmálið að hefjast - Flagbjarnarholt
Fyrra gangmál - 13. júní 2009
Haraldur Þorgeirsson - Fyrra gangmál
Róbert Veigar - Fyrra gangmál
Magnús L. Sigurðsson - Fyrra gangmál
Haraldur Páll Bjarkarson - Fyrra gangmál
Logi Laxdal - Fyrra gangmál (PLÁSS TIL SÖLU hjá Loga í síma 899-9847)
Einar Ólafsson - Fyrra gangmál
Egill Rafn Sigurgeirsson - Fyrra gangmál
Guðjón Árnason - Fyrra gangmál
Páll Pálsson - Fyrra gangmál
Steindór og Vildís - Fyrra gangmál
Þorlákur - Fyrra gangmál
Sigurður Jökulsson - Fyrra gangmál
Við afhendingu hryssnanna þarf að láta Helgu vita um eftirfarandi: eigandi/umráðamaður hryssu, símanúmer, uppl. um hryssu, nafn, fæðingarnúmer og einstaklingsmerki. Góð regla er að búið sé að einstaklingsmerkja folöld og gefa hryssunum inn ormalyf auk þess að klippa hófa ef þess er þörf. Hryssur sem koma í girðingu hjá hestinum verða alfarið á ábyrgð umráðamanna þeirra á meðan þær eru í girðingunni. Daglegt eftirlit verður með girðingunni en umráðamönnum hryssu er óheimilt að vafra um girðinguna á tímabilinu án samráðs við umsjónarmann. Mælt er með að umráðamenn gangi frá tryggingu á hryssunum og folöldunum áður en komið er í girðinguna.
Stefnt er að því að sónarskoða að um 6 viknum liðnum eða um mánaðamót júlí/ágúst.
7.6.2009
Fyrsta fylið staðfest
Fylið, 17 daga gamalt í sónarskoðun.
Eins og fram kemur í eftirfarandi lista nær Hákon líklega að klára 7-8 hryssur á húsmálinu til 15. júní. Hryssurnar sem eru á leið í hólfið eru 11 og því er pláss laust. Við göngum á varalistann og bjóðum Sigga á Vatni að koma með hryssu í hólfið til að ná fjöldanum upp í 12. Auk þess er Logi Laxdal ekki klár með hryssu í hólfið og bíður því sitt pláss falt. Hægt er að hafa samband við hann í síma 899-9847.
Útdráttur
Haraldur Þorgeirsson - Fyrra gangmál
Helgi Jón Harðarson - Húsmál
Róbert Veigar - Fyrra gangmál
Magnús L. Sigurðsson - Fyrra gangmál
Haraldur Páll Bjarkarson - Fyrra gangmál
Logi Laxdal - Fyrra gangmál (PLÁSS TIL SÖLU hjá Loga í síma 899-9847)
Einar Ólafsson - Fyrra gangmál
Egill Rafn Sigurgeirsson - Fyrra gangmál
Jón Ægisson - Húsmál
Guðjón Árnason - Fyrra gangmál
Uppboð
Magnús Trausti - Húsmál
Páll Pálsson - Fyrra gangmál
Varalisti
Hannes Sigurjónsson - Húsmál
Steindór og Vildís - Fyrra gangmál
Smári Adólfsson - Húsmál
Ketill Björnsson - situr hjá (kemur 2010)
Björn Þór Björnsson - Húsmál
Einar Þór/Arnar - Sitja hjá (koma 2010)
Gunnar og Elín - Húsmál
Þorlákur - Fyrra gangmál
Christina Lund - Situr hjá (kemur 2010)
Sigurður Jökulsson - Fyrra gangmál
17.5.2009
Hákon missir sveindóminn
Hákon kom á Blesastaði mánudaginn 11. maí síðastliðinn. Strax fyrsta daginn var komin hryssa eins hluthafans, í mígandi látum. Hákon lét eins og hann hefði aldrei gert annað og hafði Magnús Trausti orð á því hve öruggur hann væri í kringum hryssu og gengi hreint til verks.
Í myndaalbúminu "Hákon missir sveindóminn" eru myndir frá Blesastöðum, sumar ekki fyrir viðkvæma. Þess má geta að það er auglýst eftir sjálboðaliðum í sumar, vopnaða sólaráburði, til að bera á djásnin á Hákoni þegar sólin skín sem skærast. Endilega bendið okkur á einhverja góða ;-)
17.5.2009
Velkomin á heimasíðu Hákons
Allar hugmyndir og ábendingar eru vel þegnar á hannes@lsh.is eða í gestabókina.
Bestu kveðjur,
Hannes.

16.5.2009
Fundargerð aðfalfundar
